Verktakar

Rætur verktakar eru alhliða byggingaverktakar. Starfssvæði félagsins er á Suðurnesjum ásamt höfuðborgarsvæðinu. Hjá félaginu starfa 9 smiðir og byggingaverkamenn með áratuga reynslu.  Félagið tekur að sér allar tegundir af verkefnum s.s. þakskipti, pallasmíð, uppsteypu og gluggaskipti. Við höfum einnig mikla reynslu af því að taka eldri hús og íbúðir í gegn frá A til Ö að innan og utan.

Rætur verktakar leggja áherslu á gæði, fagmennsku og gott samstarf við samstarfsaðila sína.

Tilboð eða tímavinna.

Pallar

Við hjá Rætur verktakar getum smíðað allar stærðir og gerðir af sólpöllum. Hér er sýnishorn af nokkrum.