Fasteignir

Meginstarfsemin hjá Rætur fasteignir er nýbygging og sala íbúðarhúsnæðis. Okkar áhersla er bygging gæðahúsnæðis fyrir fjölskyldur á sanngjörnu verði. Í samræmi við gildi félagsins þá leggjum við mikla áherslu á að kaupendur okkar fasteigna gangi sáttir frá borði.

Lækjamót 26-28

Rætur verktakar eru nú á fullu við að byggja parhús við Lækjarmót 26-28 í Sandgerði | Suðurnesjabæ.

Um er að ræða fullbúið 119 fm, 4 herbergja parhús.

Húsið er sérlega viðhaldslétt, með ál/tré gluggum og ljósri steinfíber klæðningu. Innkeyrslan verður steypt með snjóbræðslu ásamt sólpalli.

Afhending í júlí 2024.

Um er að ræða steinsteypt hús sem afhendist fullbúið án gólfefna fyrir utan forstofu og baðherbergi sem verða flísalögð.
Lagnaleið verður til staðar fyrir rafmagnshleðslustöð og lóðin verður grasilögð.

*Bílastæði verður steypt með snjóbræðslulögn
*Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslustöð á bílastæði
*Riss ehf. hannaði Huldudal 19-21
*Innihurðir frá Birgisson
*Innréttingar í eldhúsi, á baðherbergi og fataskápar frá HTH.
*Hiti er í öllum gólfum hússins, Rehau stýritæki fyrir gólfhita.

Svefnherbergin eru þrjú. Það eru fataskápar í öllum herbergjum frá HTH.

Eldhús er opið við stofu. Eldhúsinnréttingin er frá HTH/Ormsson og er annars vegar með ljósri mokka filmu og hins vegar úr dökkri mood filmu. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakaraofn.

Baðherbergi. Á baðherbergi verða gólf og 3 veggir flísalagðir með gráum flísum. Innrétting frá HTH/Ormsson.  Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla.

Frekari upplýsingar gefur Ína í s: 618-4497 eða ina@raetur.is

Bárusker 2

Rætur verktakar byggja 11 íbúða hús að Báruskeri 2 í Sandgerði | Suðurnesjabæ.

Í húsinu verða fjórar 4. herbergja íbúðir 93 fm hver, fjórar 3. herbergja íbúðir 83 fm hver og þrjár 2. herbergja íbúðir sem verða 64 fm hver.

Húsið verður sérlega viðhaldslétt, með ál/tré gluggum og báruál klæðningu. Innkeyrslan verður steypt með snjóbræðslu. Allar íbúðir verða annað hvort með svölum eða palli.

Afhending verður í upphafi árs 2025.

Frekari upplýsingar gefur Ína í s: 618-4497 eða ina@raetur.is

Huldudalur 19-21

Rætur verktakar byggja parhús að Huldudal 19-21 í Innri Njarðvík.
Um er að ræða fullbúið fimm herbergja parhús, 175,5 fm, þar af 32,5 fm bílskúr við Huldudal 19-21.
Húsið er sérlega viðhaldslétt, með ál/tré gluggum og steinfíber klæðningu. Innkeyrslan verður steypt með snjóbræðslu ásamt sólpalli með heitum potti sem snýr í suður.

Afhending 1.mars 2024, lokafrágángur lóðar eigi síður en 15.maí.

Um er að ræða steinsteypt hús sem afhendist fullbúið án gólfefna fyrir utan forstofu, baðherbergi og þvottahús sem verður flísalagt.
Sólpallur afhendist með heitum potti sem snýr í suður, lagnaleið verður til staðar fyrir rafmagnshleðslustöð og lóðin verður grasilögð.

*Gólfsíðir gluggar í alrými.
*Aukin lofthæð
*Bílastæði verður steypt með snjóbræðslulögn
*Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslustöð á bílastæði
*Skilast með heitum potti frá Borgarplast
*Riss ehf. hannaði Huldudal 19-21
*Innihurðir frá Birgisson
*Innréttingar í eldhúsi, á baðherbergi og fataskápar frá HTH.
*Hiti er í öllum gólfum hússins, Rehau stýritæki fyrir gólfhita.

Svefnherbergin eru fjögur. Það eru fataskápar í öllum herbergjum frá HTH. Hjónaherbergi er 15,8 fm en hin þrjú herbergin eru 10,5 fm.
Eldhús er opið við stofu. Eldhúsinnréttingin er frá HTH/Ormsson og er annars vegar með ljósri mokka filmu og hins vegar úr dökkri eik. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, helluborð, bakaraofn og vifta fylgja
Baðherbergi. Á baðherbergi verða gólf og veggir flísalagðir með gráum flísum. Innrétting frá HTH/Ormsson. Á baðherberginu er hurð út á pallinn þar sem heiti potturinn er.
Þvottahús. Þvottahús verður með innréttingu frá HTH og vaski en þar verður pláss fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Bílskúr. Epoxy verður á bílskúrsgólfi.

Frekari upplýsingar gefur Ína í s: 618-4497 eða ina@raetur.is

Bárusker 10

Við hjá Rætur verktakar ehf byggðum þetta glæsilega raðhús í nýju hverfi í Sandgerði, Skerjahverfinu. Hver íbúð er 3-4ra herbergja, 91 fm, ásamt 15 fm geymsluskúr á 37 fm sólpalli. Var raðhúsið fullklárað í apríl 2023 og afhent nýjum eigendum. Eignin er kædd með steinfíber plötum frá Equitone og er með ál/tré gluggum. Fyrir vikið er hún mjög viðhaldslétt. Innréttingar frá HTH/Ormsson ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Gólfhiti með Danfoss hitastýringu. Innihurðar frá Birgisson. Gólf með harðparketi nema í votrýmum þar sem eru flísar. Fataskápar í svefnherbergjum.