Hjólhýsi

Rætur á glæsilegt Hobby 560 UL hjólhýsi sem er leigt út.

Hjólhýsið er Hobby 560 UL hýsi með plássi fyrir 4-5 og plássi fyrir 2 í fortjaldi ef það er leigt líka.
Mjög rúmgott hýsi með stórum ísskáp með frysti, gaseldavél með 3 hellum, vaski með heitu vatni (þarf að vera tengdur við landrafmagn fyrir heitt vatn). Mikið skápapláss.
Combi hiti sem er mjög einfalt að stilla.
2 x 90 cm rúm, hægt að setja dýnu á milli og þá er komið 230 cm breitt rúm. Fylgir góð yfirdýna sem gerir rúmið að einni heild.
Borðkrókur breytist í 140 cm rúm, eggjabakkadýna fylgir.
Borðbúnaður fyrir 6, pottur, panna, kaffikanna fyrir gas.
Útiborð og 6 stólar, 2 kollar. Gasgrill.
Rafmagnssnúrur, framlengingaspeglar, hallamál.
Hjólagrind fyrir 2 hjól (allt að 25 kíló hvort).
Sólarsella (þarf í raun ekki að tengja sig í rafmagn).
Verð 130 þúsund fyrir vikuna (frá fimmtudegi til fimmtudags). Hægt að leigja aukalega stórt uppblásið fortjald með aukaherbergi og 152 cm vindsæng á 20 þúsund.
Staðfestingargjald er 30 þúsund og tryggingin er 85 þúsund krónur sem fæst endurgreidd ef hýsinu er skilað í sama ástandi og það var afhent í.
Hýsið er um 1,7 tonn með aukahlutum og því nauðsynlegt að vera með ökuréttindi til að draga það og vera á bíl sem ræður við að draga þessa þyngd.

Sendu fyrirspurn