Bárusker 8
Rætur verktakar ehf byggja þetta glæsilega raðhús í nýju hverfi í Sandgerði, Skerjahverfinu. Hver íbúð er 3-4ra herbergja, 91 fm, að stærð ásamt 14 fm geymsluskúr og 40 fm sólpalli.
Eignin er kædd með ljósum steinfíber plötum frá Equitone og er með ál/tré gluggum. Fyrir vikið er húsið mjög viðhaldslétt. Innréttingar frá HTH/Ormsson ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Gólfhiti og verður gólfum skilað með harðparketi nema í votrýmum þar sem eru flísar. Innihurðar frá Birgisson. Fataskápar í svefnherbergjum.
Raðhúsið verður klárt í nóvember 2025.
Frekari upplýsingar gefur Ína í s: 618-4497 eða ina@raetur.is